07.01.2007 02:43:58 / Arnar Bj.
Jújú, mikið rétt gott fólk. Þetta er fyrsta bloggið hér á nýrri
og endurbættri síðu, sem mun verða mun betri en sú fyrri og mun
vera að komast á lagnirnar núna næstu daga.
Við Hafsteinn tókum þá ákvörðun að byrja aftur með þessa síðu,
og þá að vísu að hleypa mér inn hér líka
Ætlum að vísu að fá þá
Jóhann og Anton með okkur í lið, en eigum eftir að tala við þá
(þeir eru með, þeir bara vita það ekki ennþá, er það ekki svoleiðis
sem hlutirnir ganga fyrir sig?
)
Og þar sem ég er nýr meðlimur hér í endurlífgun Zora, fékk ég
heiðurinn að fyrsta blogginu, sem er að vísu bara ætlað til þess að
láta vita af okkur hérna, ljósinu í myrkrinu 
Ég ætla nú ekki að hafa þetta eitthvað svakalega lang hjá mér í
þetta skiptið, en þið megið eiga von á því að fá fleiri blogg frá
okkur drengjunum í framtíðinni, ásamt allskonar skemmtilegheitum

Takk fyrir mig.. í bili.
Arnar Bj.